miðvikudagur, ágúst 16, 2006

DK here we come
Góðir farðegar, við undirbúum okkur fyrir flugtak í flugi til Kaupmannahafnar........juhú við skvísurnar ætlum að skella okkur til Danmerkur 6.september, ég og Agnes fljúgum út á Miðvikudegi og Unnur og co fara út á fimmtudegi, Erna er með þetta í vinnslu

og Guðbjörg líka en við ætlum að heimsækja okkar ástkæru vinkonur Signý og Steffý sem búa í Odense , ég og Agnes ætlum að eyða degi í Köben og kíkja svo á stelpurnar í Odense.
Annars er allt gott að frétta, ég og Skúli erum flutt í milljónasta skipti á 3 árum en erum búin að koma okkur rosa vel fyrir hjá ástinni minni í Kópavoginum, við skötuhjúin ákváðum að fjárfesta í bíl saman sem við fáum seinna í dag, family car skiluru eða trukkur öllu heldur, Izuzu Trooper jeppi, nú vantar bara nokkra unga í viðbót þar sem að bíllinn er 7 manna ;)
later S
Sigrun kunngjörði klukkan 3:14 PM |
miðvikudagur, júlí 05, 2006
Spurning um að skella okkur hingað stúlkur mínar á laugardaginn???
Sigrun kunngjörði klukkan 10:54 AM |
Beverly Hills og Melrose placeOk, hver man ekki eftir Beverly hills og Melrose Place??? Þegar að ég var "Yngri" var ég með þessa blessuðu þætti á heilanum, við erum að tala um að ég tók hvern einasta þátt upp og horfði á hann aftur og aftur, Dylan og Brenda voru fullkomna parið og Brandon var algjört æði, Amanda var mesta tíkin og svona hringsólaði þetta um í höfðinu á manni allan daginn meðan mar hengdi upp plaggötin í herbergið sitt. Eníveis þá er pointið með þessu röfli að skjár 1 er farin að sýna þessa mögnuðu þætti á hverjum degi alveg snilldar tími, þiðvitið þegar að mar hefur ekkert að gera eftir að mar kemur heim úr vinnunni og er að bí

ða eftir að mar geti farið að elda eða mamma kalli að maturinn sé tilbúin. JESÚS verð ég nú bara að segja, er sko búin að sitja og horfa á þetta því mar kemst ekki framhjá því og dísús Bobby segi ég nú bara, hvað var svona skemmtilegt við þetta, Brandon drakk einu sinni og það var bara komin drama um að hann væri alki, Brenda fór 3 daga yfir á blæðingunum sínum og hún var bara komin í kreisí skap því hún hélt að hún væri orðin ólétt og vá ég gæti haldið endalaust áfram og ég ætla ekki einu sinni að byrja á klæðnaðinum.....en allavega finnst mér þetta svo fyndið að ég sit og horfi á þetta og grenja úr hlátri á hverjum degi.
Later S
Sigrun kunngjörði klukkan 11:01 AM |
fimmtudagur, júní 22, 2006

Halló halló,
Allt gott að frétta af mér, skvísan komin heim frá Thailandi sem var algjör snilld, meira að segja búin að setja fullt af myndum inn, linkar hérna fyrir neðan, búin að útskrifast, já útskriftin mín var 10.júní s.l. haldið í Háskólabíó, get nú reyndar ekki sagt að útskriftin sjálf hafi verið neitt brill en mar er orðin viðskiptafræðingur OMG skilur. Ég hélt enga veislu en fór út að borða með familíunni þ.e.a.s. mömmu, Mumma systrunum kærastanum og litla prinsinum mínum, fórum á Vox en ég verð bara að segja að ég varð fyrir miklum vonbrigðum. Svo er mar bara að vinna hérna hjá Dagsbrún sem er rosa fínt, skrifstofan er reyndar í rúst núna þar sem er verið að breyta öllu og við erum hérna ofan í öllu draslinu. Endilega kíkið á myndirnar frá Tæ.
Later S
Sigrun kunngjörði klukkan 10:08 AM |
Jæja pæja er ekki komin tími til að gera eitthvað í þessu.
Nú er mar bara næstum því útskrifaður úr Háskóla vó mar, útskriftin er 10.Júní 2 dögum eftir að ég kem heim frá Tælandi sem ég er nota bene að fara til eftir 6 daga dísús bobby ég er orðin spennt. Annars er ekki mikið að frétta af kellingunni nema mar er bara á fullu að vinna í nýju vinnunni rosa fínt. Fór í bústaðinn með Sigga síðustu helgi, kom reyndar í bæinn til að fara í skírnina hjá Unni sem var að skíra dóttur sína og fékk hún nafnið Hrafnhildur, passar ekkert smá vel við hana en fór svo aftur upp í bústað og vorum alveg fram á mánudag.
Talandi um Silvíu Nótt fannst mér hún standa sig vel miðað við að það var púað á hana, hefði þetta verið ég hefði ég eflaust bara farið að gráta en hún stóð sig vel miðað við aðstæður.
Later S
Sigrun kunngjörði klukkan 3:56 PM |
fimmtudagur, apríl 06, 2006

Jæja bloggleti dauðans búið að há mig upp á síðkastið en reyndar er ástæðan sú að ég er búin að vera á haus. Skilaði ritgerðinni minni á laugardaginn þvílíkur léttir nema hvað mar á víst eftir að fá hana til baka og þarf að laga og skila aftur þvílíkt pein. Skvísan er síðan flutt til múttu sinnar þetta er ágætt so far en ég verð víst að reyna að finna mér íbúð þegar að ég er komin heim frá Tælandi en þetta er fínt svona til bráðabirgða. Allavega er mar komin með nýja vinnu, hjá fyrirtæki sem heitir Dagsbrún og er s.s. fyrirtækið sem á OgVodafone, 365 o

g allt það drasl, mar fær eitthvað nýta þessa blessuðu háskólagöngu sína þarna eða svona reyna það allavega, er byrjuð í 50% starfi en byrja svo alveg þegar að lokaskil á Bs ritgerðinni eru eða 8.Maí og þá er það bara vinna til 25.Maí og þá er það bara London og þaðan til Tælands þar sem ég ætla að sóla mig og djamma og djúsa þangað til 8.Júní, læt hérna mynd fylgja af hótelherberginu þar sem við verðum, 5 stjörnu deluxe hótel á hvítri strönd Tælands, ég held barasta að mar eigi aldrei nokkurn tíma eftir að nenna að fara til Spánar eftir svona ævintýri.
Later S
Sigrun kunngjörði klukkan 9:32 PM |

Ræktin
Jæja it was about time....skvísan er búin að fjárfesta í korti í gymminu. Mætti í fyrsta skipti í morgun og var helvíti dugleg á brettinu og svo gerði mar eitthvað meira þarna voða voða dulleg.....var reyndar í erfiðleikum með að blása á mér hárið þegar að ég var búin mér var svo illt alls staðar en það lagast ;)
Later S
Sigrun kunngjörði klukkan 6:33 PM |
laugardagur, mars 11, 2006
Árshátíðarmyndir
Mar er búin að skella árshátíðarmyndunum inn....smellti hérna einni af mér með rúllurnar í hausnum þegar að ég var að taka mig til fyrir viðburðinn, svaka skvísa, gaman að segja frá því þá stendur á carmen rúllu kassanum 15.maí 1975, móðir mín hefur væntanlega fengið þær í afmælisgjöf það árið.
Later S
Sigrun kunngjörði klukkan 10:02 PM |
föstudagur, mars 03, 2006
Blog A LA UnnurÞessi færsla ætti í rauninni að vera skrifuð af henni Unni hún er að neyða mig til að blogga og hér kemur það...
Er að vinna í taninu og já ég held að ég hafi bara sjaldan fengið jafn mikið ógeð á einni vinnu á jafn stuttum tíma, meira segja þegar að ég var að vinna á Pizza Hut var ég ekki komin með ógeð fyrr en efitr 2 ár en já það eru komnir hva 6 mánuðir og ég get svo svarið það ég gæti ælt þetta er svo leiðinlegt, ef ein manneskja í viðbót spyr mig hvort að mar verði brúnn af olíu þá lem ég hana. BSc ritgerðin mín gengur svona lalalalala ekkert allt of vel en þetta á eftir að reddast á endanum, komnar með endalaust af heimildum en nenni bara varla að lesa þær....að kafna úr leti en reyndar búið að vera fullt að gera í skólanum þessa daganna þannig þá kemst mar í gang. Var meira að segja búin að klára verkefni sem er ekki skiladagur á fyrr en á mánudaginn svo að ég gæti knúsað einn alla helgina en svo er hann bara búin að svíkja mig svo ef eitthvern langar að leika við mig um helgina endilega bjalla.
Helvítis vaskurinn hjá mér er stíflaður- pípulagningarmaðurinn Mike úr Desperate Houswifes óskast
Og svo þarf ég aðeins að röfla fyrir mína og Unnar hönd um Helvítis símafyrirtækið SÍMANN, það mætti halda að það væru bara hálfvitar að vinna þarna, Unnur tók eftir því fyrir svottlu síðan að hún er alltaf rukkuð fyrir netfang sem að hún notar aldrei og hefur aldrei einu sinni opnað og ég tékkaði þá á mínum og þá var líka verið að rukka mig fyrir það sama en allavega Unnur gerði sér lítið fyrir og sagði upp netfanginu en þessir heiladauðu starfsmenn þarna í SÍMANUM lokuðu heimasímanum hennar í staðin og sendu beiðni til Hive að það ætti að loka netinu hennar líka hvernig er hægt að vera svona fokking heimskur. Ég fékk mér adsl fyrir einu og hálfu ári síðan, þegar að ég var búin að vera með netið í svona 2 mánuði hringdi ég og bað um að auka downloadið mitt úr 100mb í 700mb, allavega er ég samt alltaf að borga eitthvað auka magn og ég bara búin að vera að passa mig að vera ekki svona mikið á netinu nema hvað að þegar að ég hringdi í gær Nota bene 3 sinnum í fyrsta skiptið var ég númerið 3 í röðinni eftir 30 mínútur kom helvítis kellingin aftur og sagði að ég væri ennþá númer 3 ég skellti á, í annað skiptið var ég númer 5 í röðinni ég sá bara fram á að þetta yrðu 2 tíamr í bið þannig að ég gafst upp aftur og náði svo loksins í 3 skiptið þar sem að mér var tjáð að þetta heimska fólk þarna hjá SÍMANUM hafi ekki breytt magninu mínu og þess vegna væri ég alltaf að borga umfram helvítis heimska fólk og ég búin að borða 2000 kall á mánuði í meira en ár fyrir þetta drasl. SÍMINN helvítis skítafyrirtæki ég ætla að skipta yfir til Hive og og Vodafone En svo er það náttlega litli sæti bíllinn minn sem að lítur út fyrir að vera að fá lækningu, jebbs hugsa að ég sé búin að finna vél í greyjið á góðu verði og gæja í verkið s.s. að setja vélina í á góðu verði líka, djös snilld ég er farin að sakna geislaspilarans míns og neonljósanna í gólfinu allsvakalega mikið.
En svona fyrir utan allt þá er ég í vondu skapi í vinnunni og nenni ekki að vera hérna, langar helst að leggjast inn í eitthvern bekk og vera þar í svona klukkutíma.....
Later S
Sigrun kunngjörði klukkan 4:43 PM |
fimmtudagur, febrúar 23, 2006
Damn ég nenni þessu klukk dæmi ekki en bara fyrir þig Ingunn mín
4 vinnur sem ég hef unnið um ævina:
- Breiðholtsbakaríi
- Úrvals Kökur
- Pizza Hut
- Reykjavíkurborg(flokkstjóri)
4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur:
- Pretty Woman
- Notting Hill
- Love actualy
- Four weddings and a funeral------mætti halda að ég hefði eitthvað thing fyrir Hugh og Juliu
4 staðir sem ég hef búið á:
- Þykkvibær 2
- Reykás 21
- Skógarás 15
- Ólafsgeisli 73
4 sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi:
- FRIENDS
- Sex and the city
- Prison Brake
- OC
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Danmörk
- Spánn
- England
- Selfoss
4 heimasíður sem ég skoða daglega:
-
Háskólinn í Reykjavík-
Zoolanders-
HR-Girls-
Miss Sandholt
4 bækur sem ég les oft:
- Dagbók 2006
- Leiðinleg skólabók
- Leiðinleg skólabók
- Leiðinleg skólabók
4 staðir sem ég vildi vera á núna:
- Að kúra.....
- London beibi
- Að fá mér kaldann með mellunum mínum
- Heima að knúsa Skúlaling
4 manneskjur sem ég ætla að klukka:
- engann
- engann
- engann
- engann
þetta var of leiðinlegt
Sigrun kunngjörði klukkan 6:40 PM |